Lestardraumar

Samúel T. Pétursson birti áhugaverðan pistil á Deiglunni í dag. Þar segir hann meðal annars:

Það er ekki ósennilegt að í hugum margra séu lestarsamgöngur eitt af þeim göfugu endamarkmiðum sem hver borg þarf að marka sér til að komast á kortið sem borg meðal borga. Ekki síst nú á tímum umhverfisvitundar og hundrað dollara olíutunnu. Það er sennilega með þessa hugsun í farteskinu sem nokkrir alþingismenn hafa lagt fram þingsályktun þess efnis að skoðuð verði hagkvæmni þess að byggja lestarspor milli Reykjavíkur og Keflavíkurvallar annars vegar, og byggja upp léttlestarkerfi á höfuðborgarsvæðinu hins vegar. [...] En ný úttekt á lestarsamgöngum sem slíkum er óþörf. Gerð var sambærileg úttekt og þingsályktunin leggur til fyrir réttum fjórum árum síðan. Úttektin var unnin af verkfræðistofunni VSÓ að beiðni OR undir stjórn Alfreðs Þorsteinssonar, þáverandi stjórnarformanns. Niðurstaða úttektarinnar kom fáum á óvart. Ekki síst sérfræðiaðilum. Kostnaður, bæði stofn- og rekstrarkostnaður, var óheyrilega hár, og ávinningurinn mjög takmarkaður. Stofnkostnaður léttlestakerfis var t.a.m. áætlaður milli 20 og 30 milljarðar (líklega 30-40 á núverandi verðlagi), myndi einungis þjóna um þriðjungi af íbúum Reykjavíkur og tekjur af fargjöldum tæplega ná inn fyrir rekstargjöldum.

Nauðsynlegt er að benda á hversu fáránlegt það væri að fara í þessar framkvæmdir. Eins og vitað er þá eru lestarsamgöngur niðurgreiddar, til dæmis í Skandinavíu (þótt mig gruni að flest allar lestar séu niðurgreiddar til að halda verði niðri í samkeppni við einkabílinn). Höfuðborgarsvæði þar eru mun fjölmennari heldur en höfuðborgarsvæðið hér á Íslandi og því er alveg augljóst að ef við færum að koma upp einhverju lestarkerfi hér þá yrði slíkt að vera niðurgreitt til að einhver sæi sér hag í því að nota samgönguformið...

Og hversu oft kvarta ekki Íslendingar yfir sjónmengun? Vita menn ekki hversu mikil sjónmengun fylgir því að vera með lest? Hér eru tvö dæmi frá Svíþjóð:

Lestarstöð í Svíþjóð Dansbo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Birti ekki myndir af léttlestarkerfi, en myndir af slíku í Ósló eru að finna hér: http://no.wikipedia.org/wiki/Trikken_i_Oslo (og þeir sem hafa heimsótt Ósló vita vel hversu mikla sjónmengun við þrufum að sætta okkur við ef við förum í uppbyggingu léttlestarkerfis innan höfðurborgarsvæðisins.

Reynir Jóhannesson, 29.3.2008 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband