Lestardraumar II

Lestardraumar

Samúel T. Pétursson birti áhugaverðan pistil á Deiglunni í dag. Þar segir hann meðal annars:

Það er ekki ósennilegt að í hugum margra séu lestarsamgöngur eitt af þeim göfugu endamarkmiðum sem hver borg þarf að marka sér til að komast á kortið sem borg meðal borga. Ekki síst nú á tímum umhverfisvitundar og hundrað dollara olíutunnu. Það er sennilega með þessa hugsun í farteskinu sem nokkrir alþingismenn hafa lagt fram þingsályktun þess efnis að skoðuð verði hagkvæmni þess að byggja lestarspor milli Reykjavíkur og Keflavíkurvallar annars vegar, og byggja upp léttlestarkerfi á höfuðborgarsvæðinu hins vegar. [...] En ný úttekt á lestarsamgöngum sem slíkum er óþörf. Gerð var sambærileg úttekt og þingsályktunin leggur til fyrir réttum fjórum árum síðan. Úttektin var unnin af verkfræðistofunni VSÓ að beiðni OR undir stjórn Alfreðs Þorsteinssonar, þáverandi stjórnarformanns. Niðurstaða úttektarinnar kom fáum á óvart. Ekki síst sérfræðiaðilum. Kostnaður, bæði stofn- og rekstrarkostnaður, var óheyrilega hár, og ávinningurinn mjög takmarkaður. Stofnkostnaður léttlestakerfis var t.a.m. áætlaður milli 20 og 30 milljarðar (líklega 30-40 á núverandi verðlagi), myndi einungis þjóna um þriðjungi af íbúum Reykjavíkur og tekjur af fargjöldum tæplega ná inn fyrir rekstargjöldum.

Nauðsynlegt er að benda á hversu fáránlegt það væri að fara í þessar framkvæmdir. Eins og vitað er þá eru lestarsamgöngur niðurgreiddar, til dæmis í Skandinavíu (þótt mig gruni að flest allar lestar séu niðurgreiddar til að halda verði niðri í samkeppni við einkabílinn). Höfuðborgarsvæði þar eru mun fjölmennari heldur en höfuðborgarsvæðið hér á Íslandi og því er alveg augljóst að ef við færum að koma upp einhverju lestarkerfi hér þá yrði slíkt að vera niðurgreitt til að einhver sæi sér hag í því að nota samgönguformið...

Og hversu oft kvarta ekki Íslendingar yfir sjónmengun? Vita menn ekki hversu mikil sjónmengun fylgir því að vera með lest? Hér eru tvö dæmi frá Svíþjóð (og hér er hægt að skoða "trikken" í Osló):

Lestarstöð í Svíþjóð Dansbo

 


mbl.is Borgarráð skoðar hagkvæmni lesta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Reynir Jóhannesson

1) Lest eða léttlest.. skiptir ekki máli. Mikil sjónmengun hvort sem er. Lest til Keflavíkur væri ekki léttlest, heldur alvöru lest eins og á myndinni. Hvað varðar léttlestarkerfi, þá mættiru alveg lesa pistilinn og ekki bara skoða myndirnar. Ég gef upp slóð þar sem hægt er að skoða "trikken" í Osló. (Léttlestarkerfið í Osló). Þar getur þú séð myndir o.fl. Ég ætti kannski bara að bæta þeim við hér í færslunni til að undirstrika hversu mikil sjónmengun fylgir þessu.

http://no.wikipedia.org/wiki/Trikken_i_Oslo 

2) Fargjöldin ná hvergi upp i rekstrarkostnað og án þess að vera með örugga heimild, þá er ég nokkuð viss um að Danir niðurgreiða sínar samgöngur til að halda verðinu niðri. Ég skal svo segja þér af hverju ég held að fólk fari í borgarferðir til Kaupmannahafnar frekar enn til Indianapolis: Til að versla, menningartengsl, ódýrara flug, nóg að gera í borginni og gott kaffi (segja alla vega danskar kaffiauglýsingar).

3) Kaupmannahöfn er 650 þús manna borg. Osló er eitthvað svipað held ég. Og þeim er ekkert að takast að fá nægilega marga til að nota almenningssamgöngur þar er ekkert lítið mál þar sem markaðurinn er talin of lítill.. Hvað þá í Reykjavík?

Reynir Jóhannesson, 27.3.2008 kl. 17:11

2 Smámynd: Reynir Jóhannesson

... svo var ég á Spáni í eitt ár í skóla. Þar var ég í 200.000 manna bæ. Ekkert léttlestarkerfi. Bara strætó... sem var alveg nóg.

Reynir Jóhannesson, 27.3.2008 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband