Stjórnmálabrandari ársins

Meginstef stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar verður endurreisn íslensks samfélags, aðgerðir í þágu heimilanna og fyrirtækja, endurreisn bankakerfis og uppbygging atvinnulífs.

Fyndið. Maður hefur nú heyrt þennan stjórnmálabrandara áður. Ríkisstjórnin ætti kannski að klára brandarann og hafa þetta svona:

Meginstef stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar verður endurreisn íslensks samfélags, aðgerðir í þágu heimilanna og fyrirtækja, endurreisn bankakerfis og uppbygging atvinnulífs... DJÓK!!!

En jæja, auðvitað gefur maður þessu liði séns, enda mun maður þurfa að treysta á að þau geri eitthvað rétt á næstu vikum og mánuðum. Ég hlakka til að kynna mér stefnumál vinstristjórnarinnar - sérstaklega breytingar á ráðuneytum... og já, auðvitað skjaldborgina svokölluðu. Kannski fáum við að sjá eitthvað af henni á morgun:)


mbl.is Ný ríkisstjórn á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er það besta sem við höfum.

Þið íhaldsmenn sem leidduð þjóðina í gjaldþrot verið að  sitja á hliðarlínuninni vonandi næstu áratugi.

kv

Sigurdur (IP-tala skráð) 10.5.2009 kl. 01:07

2 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Ég get verið sammála því að ágætt er að flokkur sem hefur setið svona lengi í ríkisstjórn fái smá frí. En er þá í lagi að vera með Samfylkingu í ríkisstjórn í 20 ár... bara vegna þess að hún er ekki "íhaldið"?

Sigurður, ekki láta reiðina blinda þig.

Reynir Jóhannesson, 10.5.2009 kl. 01:31

3 Smámynd: Eygló

Alltaf jafn "skemmtilegar" alhæfingarnar.  Fólk segir "svona eru múslímar", "Kaninn lætur ekki að sér hæða" eða "Þið íhaldsmenn sem leidduð þjóðina í gjaldþrot..."  Annars er þetta vonandi eitthvert grín ykkar á milli.

Já, við verðum að gefa þeim sjens sem hafa fengið sjensinn. Það er enginn sjens á öðru í bili. Sjensinn!

Eygló, 10.5.2009 kl. 03:30

4 Smámynd: Páll Blöndal

Það ætti enginn flokkur að fá að sitja svona lengi.
Best væri aðkerfið byði upp á að ríkjandi stjórnmálaflokkur
fái ekki að sitja lengur en 2 kjörtímbil. Mætti hugsa sér ýmsar leiðir til útfærslu

Páll Blöndal, 10.5.2009 kl. 03:34

5 Smámynd: Guðmundur Friðrik Matthíasson

 Það ætti að vera tveggja flokka kerfi hér á Íslandi hægri og vinstri.

Þetta verður kannski 100 daga stjórn vonandi ekki meira 

Guðmundur Friðrik Matthíasson, 10.5.2009 kl. 09:35

6 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Maíja: Ég held að Sigurður þarna hafi ekkert verið að grínast. :P 

Páll: Ég er ekki alveg sammála þessu með að "flokkur" megi ekki sitja lengur en 2 kjörtímabil... hins vegar mætti skoða beina kosningu forsætisráðherra og að sá aðili mætti ekki sitja lengur en 2 kjörtímabil.

Guðmundur: Það má vel vera að þetta muni enda í tveggja flokka kerfi, það er að segja ef við breytum kosningakerfinu/kjördæmaskipan. Með núverandi kerfi munum við alltaf vera með 4-6 flokka á þingi. Til dæmis eins og þegar Frjálslyndi flokkurinn var þurkaður út... þá kom bara Borgarahreyfingin inn.

Reynir Jóhannesson, 10.5.2009 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband