„Skákmeistarinn“ Paul Ramses

Keníamaðurinn Paul Ramses var handtekinn og rekinn úr landi fyrir það að vera hér í leyfisleysi. Eiginkona hans er hér enn í óleyfi vegna fæðingar barns þeirra hjóna. Ítalía á að fjalla um mál Ramses samkvæmt Dyflinnarsamningnum. En samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun er hægt að gera undantekningar á þeim grundvelli að umsækjandi eigi fjölskyldu í öðru landi. Paul Ramses á einmitt fjölskyldu á Íslandi. En það vilja íslensk yfirvöld ekki viðurkenna þar sem eiginkona hans og barn eru hér án leyfis. Því kemur engin undantekning til greina í þessu tilfelli.

Við verðum að gera þá kröfu á stjórnsýsluna og ráðamenn að þeir taki ekki ákvörðun í máli án þess að það hafi verið tekið til skoðunar. Hins vegar má vel vera að niðurstaðan hefði orðið sú að synja ætti umsókn Paul Ramses. En málið var ekki tekið fyrir þar sem yfirvöld túlka Dyflinnarsamninginn sér í hag. Samningurinn bannar Íslendingum hins vegar ekki að taka fyrir mál Ramses, heldur eru þarna mannréttindasjónarmið á ferð sem tryggja honum málsmeðferð í að minnsta kosti einu landi innan Schengen svæðisins.

Ísland reynir nú á dögum að finna stöðu sína í alþjóðasamfélaginu. Er þetta aðkoma Íslands að alþjóðasamvinnu? Við búum í heimi þar sem margt slæmt gerist. Íslendingar geta slökkt á útvörpum og sjónvörpum og leitt hjá sér óþægilegar fréttir og upplýsingar. Við þurfum ekki að taka fyrir mál Paul Ramses frekar enn nokkurra annarra. Þetta er algjörlega okkar eigið val. En spurning er hvort yfirvöld eigi að hafa þann valmöguleika að geta leitt hjá sér óþægilegt mál með þessum hætti. Það kemur ekki fram í neinum tilkynningum eða yfirlýsingum að Paul Ramses og fjölskylda hans hafi verið íslensku samfélagi til vandræða. Heldur er vísað til samninga og samkomulaga til að færa rök fyrir ákvörðun yfirvalda.

Íslenskir stjórnmálamenn geta staðið fyrir björgun erlendra skákmanna (Bobby Fisher) og veitt þeim íslenskan ríkisborgararétt og vegabréf án fyrirhafnar. Var það kannski réttmæt undantekning að mati forstjóra Útlendingastofnunar eða hæstvirtum dómsmálaráðherra? Ef mál Bobby Fishers var tekið fyrir sé ég enga ástæðu til að vísa máli Paul Ramses frá. Ef eiginkona Ramses fékk dvalarleyfi í Svíþjóð til ársins 2012, set ég spurningamerki við synjun íslenskra yfirvalda á umsókn hennar um dvalarleyfi hér á landi. Hvað er það sem Svíar sætta sig við en ekki Íslendingar?

Þar sem þetta mál hefur ekki verið tekið fyrir legg ég til að við sendum Ramses á skáknámskeið og höldum hér mót honum til heiðurs. Látum alla skákmeistara Íslands tapa fyrir nýja skákmeistaranum Hr. Ramses. Með því gæti kannski fylgt íslenskt vegabréf. Stundum er allt hægt á Íslandi... en þá augljóslega bara stundum og þegar það hentar ákveðnum aðilum.

Nú er bara að vona að forsætisráðherra Geir H. Haarde geri athugun á þessari málsmeðferð. Enda full ástæða til.

Deiglan.com, 07. júlí 2008. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú verður nú að athuga að Bobby var búinn að tala um það í erlendum fjölmiðlum að hann saknaði þess að fá skyr. Ramses saknar bara konunnar sinnar og litla barnsins, frænda síns og nokkurra vina.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 00:10

2 Smámynd: Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir

Góð færsla Reynir, hjartanlega sammála þér!

Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, 7.7.2008 kl. 13:37

3 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Eva: já það gæti vel verið lausnin. Fá Paul Ramses til að auglýsa íslenskt lambakjöt í Ítalíu.

Sigurlaug Anna: þakka þér fyrir. Dapurlegt hvernig að málinu var staðið.

Reynir Jóhannesson, 7.7.2008 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband