Hussein "Hoder" Derakhshan
11.12.2008 | 21:24
Íransk- kanadíski bloggarinn, Hussein Derakhshan, snýr aftur heim til Íran og hefur verið handtekinn. Ekki er vitað fyrir hvað, en líklegast tengist það skrifum hans. Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál en alls ekkert einsdæmi í heiminum. Fjöldi manns hefur reynt að nota veraldarvefinn til að stofna eigin fjölmiðil og komast hjá ritskoðun stjórnvalda, og það oft undir dulnefni. Bloggarinn sem hér er um að ræða er hins vegar óhræddur við að tjá sig undir eigin nafni en er samt sem áður betur þekktur sem "Hoder" (bloggnafn). Hussein "Hoder" Derakhshan hefur meðal annars starfað sem blaðamaður í Kanada.
Þar sem tjáningarfrelsið er skert eru margir bloggarar nafnlausir á sínum bloggum. Sú leið er meðal annars farin til að komast hjá handtöku. Oft nota konur sér þessa leið þar sem í sumum löndum mega þær ekki eiga blogg eða bara tjá sig opinberlega yfir höfuð.
Ljóst er að með þróun hugbúnaðar og ýmissar tækni sem stuðlar að útbreiðslu bloggsíðna í heiminum munu sífellt
fleiri lenda í svipuðum vandamálum þar sem enn er að finna fjölda ríkja sem takmarka tjáningafrelsi verulega. Bloggarar eru handteknir, sektaðir o.s.frv.
Að mínu mati er rétt að veita eins mörgum og hægt er tækifæri til þess að tjá sig á veraldarvefnum með til dæmis
eigin bloggi. Hins vegar virðist vera nauðsynlegt að leggja þeim bloggurum til aðstoð þegar vandamál sem þessi koma upp. Spurning hvað við Íslendingar getum gert í þeim málum?
Hér er að finna tilkynningu mannréttindahóps í Íran í tengslum við handtöku bloggarans:
http://www.iranhumanrights.org/themes/news/single-news/article/controversial-bloggers-detention-confirmed.html
Hussein Derakhshan hefur áður átt í deilum við Mehdi Khalaji, einn af ráðgjöfum Ali Khamenei: http://en.wikipedia.org/wiki/Mehdi_Khalaji
Íranskur bloggari handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Facebook
Athugasemdir
Ég er þér hjartanlega sammála í þessu, það á að leyfa fólki að nota veraldavefinn í meira mæli, gott dæmi með að menn bloggi. Málfrelsi er einmitt af skornum skammti í mörgum löndum, því miður. Veraldavefurinn er þeim hæfileikum gæddur að vera landamæralaus og það gefur fólki lausan tauminn, oft verið kölluð sjötta heimsálfan. Mér finnst hryllilegt til þess að hugsa hversu langt sumar ríkisstjórnin eru viljugar í að halda einhverju kverkataki á þegnum sínum þegar það eina sem þeir hafa til saka unnið að opna munninn (öllu heldur pikkhöndina). Megi sem flestir fá aðgang af vefnum og nýta sér mátt frelsis og upplýsinga, og vonandi sleppa þeir þessum Derakhshansem allra fyrst.
Garðar Valur Hallfreðsson, 11.12.2008 kl. 21:53
En geta ekki aðrir bloggarar nýtt sér tjáningarfrelsi sitt til að aðstoða aðra bloggara? Hvað geta til dæmis íslenskir bloggarar gert?
Reynir Jóhannesson, 11.12.2008 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.