Mín spá - alþingiskosningar 12.maí nk.

fylgiflokkannaÞað styttist í kosningar. Í nokkrar vikur núna hefur verið spurningakönnun hér á blogginu þar sem spurt var hvað fólk ætlar að kjósa. Ég ætla mér að vera svo "vísindalegur" og nota þessa frábæru könnun þar sem rúmlega 100 manns tóku þátt (ekkert verri könnun en það sem Fréttablaðið birtir:P). Nota svo niðurstöðuna til að spá um úrslit kosninganna, þar sem ég held að þetta sé nokkuð sambærilegt þeim könnunum sem hafa verið birtar síðustu vikur. Leyfi mér nú samt að nota 2 prósent skekkjumörk. Mín spá verður þannig séð þessi:

 

Sjálfstæðisflokkurinn:     

35,2%      (37,2%)     39,2%

Samfylkingin:
                   

21,1%      (23,1%)     25,1%

Vinstri grænir:                    

14,5%      (16,5%)     18,5%

Framsóknarflokkurinn:       

11,2%      (13,2%)     15,2%

Íslandshreyfingin:                

4,5%        (6,6%)       8,6%

Frjálslyndi flokkurinn:           

0,5%        (2,5%)       4,5%

Sjálfstæðisflokkurinn mun vera nær efri öryggismörkum. Það veit nú engin hvernig vinstrimenn landsins ætla að raða sér niður, bara vitleysa í henni Ingibjörgu þegar hún segir að Samfylkingin sé fullmótaður flokkur jafnaðarmanna. Mig grunar að Framsókn gæti farið upp í 13-15%. Ég er alla vega nokkuð viss um að núverandi ríkisstjórn mun ná kringum 50%.

Frjálslyndi flokkurinn er að mínu mati alveg að missa sig og hefur ekki náð að markera sig í þessari kosningabaráttu. Það sama gildir um Íslandshreyfinguna. Þessir flokkar eru bara alls ekki að ná þeim árangri sem margir reiknuðu með. Annað hvort verður Íslandshreyfingin sigurvegari þessara flokka á botninum, eða þá verða þeir nokkuð jafnir. Frjálslyndir verða ná kannski 4-5% fylgi.

Ég vona þá bara að bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Eiríkur fari af með sigur þetta kvöld 12. maí nk. Eurovision og Alþingiskosningar á sama kvöldi :P Algjör snilld.


mbl.is Fylgishreyfing mest meðal kvenna á vinstri vængnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Ætli skekkjumörkin séu nú ekki aðeins meiri með svona litlu úrtaki.  Mér skilst t.d. að skekkjumörkin í nýjustu skoðanakönnun Gallup sé yfir 10% í landsbyggðarkjördæmunum. Úrtakið í NV-kjördæmi er 61.

Auðun Gíslason, 4.5.2007 kl. 18:17

2 Smámynd: Jóhann Alfreð Kristinsson

Held að þetta sé furðu nærri lagi. Kannski að íslandshreyfing og frjálslyndir skipti um súlur. 

Jóhann Alfreð Kristinsson , 4.5.2007 kl. 18:18

3 Smámynd: Reynir Jóhannesson

já, held að það sé nokkuð rétt hjá þér Jói. Varðandi skekkjumörkin, þá nefndi ég það bara vegna þess að ég ætla svo að bera saman niðurstöður eftir kosningar. Sjá hversu vel ég mun hitta. Ekkert mikil vísindi á bak við þetta:P Alla vega ekki Gallup-style, heldur meiri Fréttablaðs-style.

Reynir Jóhannesson, 4.5.2007 kl. 18:23

4 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Ég gæti alveg trúað því að þetta sé nærri lagi hjá þér, en vona að Sjálfstæðisflokkurinn verði örlítið hærri. Ég hef þá trú að í kraganum náist inn 6 sjálfstæðisþingmenn ... og gangi það eftir þá vakna ég glöð í hjarta þann 13. maí.

Herdís Sigurjónsdóttir, 4.5.2007 kl. 22:21

5 Smámynd: Egill Rúnar Sigurðsson

Held að þetta sé nokkuð nærri lagi hjá þér, nema hvað að ég er sannfærður um að Samfylkingin fær a.m.k. 26% fylgi og ég held að Framsókn fái hámark 11% að öðru eliti er ég nokkuð sammála.

Egill Rúnar Sigurðsson, 4.5.2007 kl. 22:24

6 Smámynd: Egill Rúnar Sigurðsson

p.s. Já, það væri rétt að víxla súlunum hjá Frjálslyndum og Íslandhreyfingunni.

Egill Rúnar Sigurðsson, 4.5.2007 kl. 22:27

7 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Herdís: Já, vona það nú líka:) Að Sjálfstæðisflokkurinn fari yfir 40%.

Egill: Það verður mjög spennandi að sjá hvernig vinstriflokkarnir fara í þessari kosningu. Ég er ekkert svo viss um að Samfylkingin hafi einhver 26% örugg. Hef reyndar komið með tillögu um nýtt nafn fyrir flokkinn hér á blogginu áður: "Fylkingin". Þar sem þetta er ekki lengur samfylking vinstrimanna. Framsókn mun tapa fylgi í þessari kosningu, það er eitthvað sem er alveg pottþétt! En ætli þessir verðandi fyrrverandi framsóknarmenn fari yfir til vinstriflokka?

Reynir Jóhannesson, 5.5.2007 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband