Wolfowitz í vandrćđum

paulwolfowitz_wideweb__470x341,0Ţessi frétt á mbl.is segir afskaplega lítiđ um máliđ. Leiđinlegar ţessar stuttu skyndifréttir. Styrmir Gunnarsson(ritstjóri Morgunblađsins) sagđi í vor, ţegar hann heimsótti okkur í stjórnmálafrćđinni, ađ Morgunblađiđ vćri ađ reyna finna leiđir til ađ ná til nýrra kynslóđa sem hefur sjaldan tíma til ađ lesa fréttir. En ţađ er nú leiđinlegt ţegar fréttirnar eru ţetta stuttar og frekar innihaldslausar. Oft ţarf ađ fylgjast međ mbl.is allan daginn til ađ ná allri sögunni ţar sem stór mál eins og Wolfowitz-máliđ koma í 3, 4 eđa 5 hlutum yfir daginn. Jafnvel fleiri. Stundum ţarf ađ hafa lesiđ allar fréttir á mbl.is um máliđ til ađ skilja út á hvađ ţađ gengur. Vantar til dćmis tengla inn á eldri fréttir um sama mál.

Wolfowitz í vandrćđum
Ţetta međ Paul Wolfowitz, forstjóra Alţjóđabankans, er nokkuđ spennandi. Starfsmenn bankans, Demókratar í Bandaríkjunum og anti-Bush-fólk um allan heim vilja núna neyđa Wolfowitz til ađ segja af sér. Ekki er hćgt ađ vera annađ en sammála ef allt er satt sem andstćđingar forstjórans segja. Ef Wolfowitz nýtir sér spillingu til ađ hćkka laun kćrustu sinnar (var komin upp í 200.000 dollara í árslaun) ţá er hann kannski ekki hćfasti ađili til ađ sinna stöđu forstjóra Alţjóđabankans. Bankinn starfar víđa um heim og veitir ríkjum lán til ađ bćta efnahagskerfi ţeirra ásamt ţví ađ vinna gegn til dćmis spillingu.

Mig grunar samt ađ ţetta sé frekar lítiđ mál en ađ valdabaráttan í pólitíkinni geri ţetta ađ stórmáli. Ţetta snýst örugglega bara um vald og ađ skađa forseta G.W.Bush. Ekki er ţađ G7 sem tekur ákvörđun í ţessu máli, heldur er ţađ stjórn Alţjóđabankans. Ţeir verđa sjálfir ađ koma sér saman um hvort hćgt sé ađ treysta Paul Wolfowitz. Japanar tóku afstöđu međ Bandaríkjamönnum sem óska eftir ţví ađ hann haldi áfram störfum sínum og reikna ég međ ţví ađ Nicolas Sarkozy, nýi forseti Frakklands, taki einnig afstöđu međ ţeim ţegar hann tekur formlega viđ forsetaembćtti sínu.

bell1En Kanada var á móti ţví ađ Wolfowitz myndi halda áfram starfi sínu. Einnig hefur John Edwards, frambjóđandi í prófkjöri Demókrata í Bandaríkjunum, sagt međal annars: "America's ability to lead in the fight against global poverty is undermined with Paul Wolfowitz at the helm of the World Bank. He should resign". Styttist í forsetakosningar í Bandaríkjunum og örugglega margir sem vilja nýta sér ţetta tćkifćri til ađ skjóta á Repúblikana sem Wolfowitz hefur í kringum sig.


mbl.is Bandaríkjunum tókst ekki ađ fá G7 ríkin til ađ styđja Wolfowitz
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband