Forsetar og ábyrgð

Eftirfarandi frétt er á Visir.is:

Eiður Guðnason fyrrverandi sendiherra segir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafi farið með rangt mál þegar hann bar af sér í Kastljósi ýmis ummæli, sem sendiherra Noregs sagði hann hafi látið falla í hádegisverðarboði erlendra sendiherra í danska sendiráðinu á Íslandi í fyrrahaust, og fræg urðu. Þetta kemur fram í grein Eiðs í Morgunblaðinu. Í boðinu var Ólafur Ragnar meðal annars sagður hafa verið harðorður í garð Breta, Dana og Svía og sagt að Rússum stæðu allar dyr opnar á Íslandi, eins og til dæmis aðstaða á Keflavíkurflugvelli. Norska blaðið Klassekampen birti útdrátt úr skýrslu norska sendiherrans um fundinn og hefur Eiður það eftir öðrum sendiherra, sem sat fundinn, að það, sem birtist í blaðinu af umræddum fundi, sé rétt. 

 

Mun ekki Hörður Torfa mótmæla forseta lýðveldisins og fá hann til að segja af sér? Ólafur Ragnar Grímsson á að vita það að þótt við höfum enga reglu í stjórnarskrá sem bannar forseta að sitja í 16 ár... þá viljum við ekki sama forseta í 16 ár. Það átti að hengja Davíð Oddsson fyrir eitt Kastljósviðtal... en Ólafur Ragnar má bara kjafta eins og hann vill?

Nýja Ísland þarf nýjan forseta. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Þú þarft að athuga það að Ólafur er vinstri maður,það gegnir alltaðrar siðareglur fyrir þá. Lærið þið það ekki í stjórnmálafræðinni.?

Ragnar Gunnlaugsson, 16.2.2009 kl. 11:27

2 Smámynd: Reynir Jóhannesson

Já ætli það sé ekki bara rétt hjá þér. En Hörður Torfa, eftir hvaða siðareglum starfar sá maður?

Reynir Jóhannesson, 16.2.2009 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband