Beint lýðræði: fundur m/ Bruno Kaufmann

Bruno Kaufmann

Að mínu mati er umræðan hér á landi um beint lýðræði/persónukjör o.s.frv. á villigötum. Eftir að hafa rætt þessi mál töluvert með honum Bruno Kaufmann ákvað ég að athuga hvort ekki væri hægt að vera með opinn fund með honum þar sem hann er á landinu. Við náðum að bóka sal á Háskólatorgi og hefur nú verið auglýstur opinn fundur með honum í dag (þriðjudag) kl. 12. Þessi maður talar af mikilli reynslu og skynsemi.

 

Sjá nánari upplýsingar hér: 

http://www.hi.is/is/vidburdir/bruno_kaufman_beint_lydraedi

 

Opinn fyrirlestur Bruno Kaufmann, svissneskur stjórnmálafræðingur og blaðamaður, sem ma. rannsakað hefur átakastjórnmál og fylgdist með "búsáhaldabyltingunni" á Íslandi í janúar og mun ræða þá þróun út frá hugmyndum um beint lýðræði í opnum fyrirlestri á vegum stjórnmálafræðideildar og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála í hádeginu á morgun þriðjudag. Bruno Kaufmann er m.a. fyrrverandi framkvæmdastjóri IRI (Initiative & Referendum institute Europe), hefur rannsakað og ritað bækur um lýðræði og átastjórnmál. Virkara lýðræði á Íslandi og hvernig þjóðarfrumkvæði og almennar atkvæðagreiðslur geta bætt fulltrúalýðræðið.

Operation Old Iceland

leadership

Alþjóðlegt lögreglusamstarf er augljóslega að skila sér. Einnig finnst mér að lögreglan á Íslandi hafi tilkynnt um aðgerðir gegn eiturlyfjaframleiðslu nánast daglega. Maður getur ekki verið annað en ánægður þegar lögreglan sýnir árangur. Hins vegar mætti spyrja hvort að Europol gæti ekki sett i gang „Old Iceland“ og klárað þetta bankahrunsmál fyrir okkur. Við virðumst að minnsta kosti ekki fær um að sjá um eigin rannsókn. Ekkert breyttist með vinstristjórn - þannig að líklegast þurfum við nýja, öfluga leiðtoga sem þora að hafa skoðanir og taka ákvarðanir. Engin breyting á leiðtogum hjá Samfylkingu og Vinstri grænum.... þannig að við munum að minnsta kosti ekki finna slíka leiðtoga þar.


mbl.is Komið upp um peningaþvætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Superobama

Barack Obama er maðurinn sem mun bjarga ímynd stjórnmála. Pólitísk ofurhetja!
mbl.is Börn eignast nýja ofurhetju - Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylkingar og endurnýjun

Getur Jóhanna Sig. haldið fylkingunni saman eða mun þetta enda sem sundurfylking í stað samfylkingar eins og Agnes Bragadóttir, blaðamaður, sagði á Bylgjunni í morgun? Samfylkingin er ekki einn flokkur... heldur margir flokkar sem nota nafn kosningabandalagsins gamla. Og smá spurning... er Jóhanna tákn endurnýjunar?
mbl.is Beðið eftir Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sundurfylkingin

Agnes Bragadóttir, blaðamaður, sagði á Bylgjunni í morgun: "Þetta verður ekki Samfylkingin, heldur Sundurfylkingin". Getur þetta verið samfylking án Ingibjargar?


Rafræn stjórnmál - ódýr og þægileg

Þróun samskipta á netinu er áhugavert viðfangsefni. Vegna prófkjörsbaráttu og kosninga í vor hef ég í nokkur skipti rætt við vini um tengingu stjórnmálamanna við slíka samskiptavefi eins og t.d. Facebook. Það sem kemur manni á óvart er að sumum finnst viðvera stjórnmálamanna þar óþolandi... sagt er að þetta sé of mikið áreiti.

Hins vegar spyr ég: Er ekki jákvætt að stjórnmálamenn geri sitt besta til að nálgast kjósendur? Er ekki jákvætt að stjórnmálamenn finni ódýrari eða jafnvel ókeypis samskiptaleiðir til að skera niður kostnað?

Kostnaðarhlið þessa máls getur auðveldað nýjum og kannski sérstaklega ungum frambjóðendum að ná árangri. En varðandi áreitið, þá er hægt [á Facebook] að velja og hafna því sem maður vill fylgjast með. Þannig séð hefur maður mun meiri stjórn á "áreitinu" á Facebook heldur en til dæmis ef stjórnmálamenn hefðu þurft að hringja, senda tölvupóst eða senda kjósendum fullt af bæklingum og fundarboðum í pósti (sem kostar sitt).

Mín niðurstaða er sú að samskiptavefir eins og t.d. Facebook séu ákjósanlegri heldur en margar aðrar samskiptaleiðir í kosningabaráttum. 


mbl.is Samskiptasíður vinsælli en tölvupóstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er ríkisstjórnin?

Ætli svar ríkisstjórnarinnar verði ekki eitthvað svona: „Þetta er bara hluti af þrotabúi Sjálfstæðisflokksins“. Yfirtakan á Straumi verður kosningamál en ekki hagsmunamál - og kæru vinstrimenn í ríkisstjórn: Hvar eru aðgerðirnar?
mbl.is Ríkið tekur Straum yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að axla ábyrgð

Maðurinn sem ætlaði að axla ábyrgð er kominn í forystu á ný. Það er alveg ljóst að mesta endurnýjunin mun eiga sér stað í Sjálfstæðisflokknum. Það stefnir í að forysta Samfylkingar og VG verði óbreytt... en ætli því verði mótmælt n.k. laugardag?
mbl.is Björgvin G. efstur í prófkjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt, XD með mest fylgi

Fínustu fréttir. Ný kynslóð er að taka við í Sjálfstæðisflokknum og í þessari könnun Capacent sést að kjósendur eru ánægðir með endurnýjunina. Sorry Steingrímur Joð, hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né frjálshyggjan er fallinn.
mbl.is Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

R-listi á Alþingi?

Ég segi bara eins og Dögg Pálsdóttir segir á sínu bloggi um þetta mál, hjá Framsókn eru ráðherrastólarnir númer 1 og málefnin númer 2. Eða hvað? Einhver ósammála? Að mínu mati er svakalega R-lista-lykt af þessu öllu. Við munum nú hvernig slík samsteypa hagaði sér í Reykjavík á sínum tíma. Fjármálastjórn R-listans fékk falleinkunn í Reykjavík. Óverjandi hallarekstur og skuldasöfnun í mesta góðæri íslandssögunnar. Kemur kannski engum á óvart... alla vega ekki þegar í síðari umræðu um ársreikning Reykjavíkurborgar árið 2006 sagði Svandís Svavarsdóttir (VG):

...það er ekki áhugi á ársreikningum og fjárhagsáætlunum sem dregur mig í pólitík

  

Ég vil ekki svona óstjórn á Alþingi.


mbl.is Vill vera í vinstri stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt að draga úr kostnaði

Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fá í aðdraganda prófkjörsins að senda einn tölvupóst frá Valhöll til sjálfstæðismanna í kjördæminu til að kynna sig og áherslur sínar.

 

Nokkrir aðrir bloggarar hafa bloggað við þessa frétt... og nýta þeir sér tækifærið til að gagnrýna þessa aðgerð Sjálfstæðisflokksins. Furðuleg skrif að mínu mati.

Þetta mun hins vegar spara frambjóðendum í öllum kjördæmum töluverðar fjárhæðir. Að senda bréf í pósti til tugþúsunda sjálfstæðismanna kostar sitt... ætli kostnaðurinn við hvert bréf sem frambjóðandi sendir sé ekki á bilinu 70-80 krónur. Því ber öllum stjórnmálaflokkum að taka slíka ákvörðun sér til fyrirmyndar og styðja sparnað í kosningabaráttu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur að undanförnu nýtt sér rafræna miðla í miklum mæli (dæmi: evropunefnd.is, endurreisn.is, profkjor.is). 

Þessu átaki Sjálfstæðisflokksins ber að fagna.


mbl.is Fá að senda einn tölvupóst frá Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á að gera?

Eins og sagt er um frambjóðandann Almar Eyfjörð á baggalutur.is: „Almar vill slá skjaldborg um heimilin og fyrirtækin í landinu“.

Baggalútur gerir grín af frambjóðendum fyrir að misnota slíkar yfirlýsingar án frekari útskýringa um "hvernig" þeir ætla sér að slá skjaldborg um heimilin og fyrirtækin í landinu. Afskaplega fáar hugmyndir hafa verið settar fram. Þessar hugmyndir þurfa ekki að vera endanlegar lausnir. Við þurfum bara að tala saman. Það er enginn einn maður með lausnina.... þannig séð spyr ég: Hvað á að gera?
mbl.is Lánastofnanir ráða Icelandair
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Sigmundur Davíð „plataður“

Samfylkingin, VG og Framsókn í samstarfi... og kannski áfram eftir kosningar... kosningabandalag? Ég skil ekki hvernig framsóknarmenn sætta sig við þessa minnihluta ríkisstjórn vinstrimanna. Og varðandi hlutverk Framsóknar í þessu öllu, hvernig geta þeir annars vegar sagt að "þeir telja sig ekki hafa umboð til að sitja í ríkisstjórn" en hins vegar leyft þessari vitleysu vinstristjórnarinnar að viðgangast? 

Eftir sem manni skilst þá er stjórnin að svíkja loforð... og er það í boði Framsóknar líka? Af hverju er ekki stjórnin sett af?

Annars vita menn að þetta er ekki í fyrsta skipti sem að foringi Framsóknarflokksins er „plataður“.


mbl.is Sigmundi Davíð boðin sáttahönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsið og einstaklingurinn

Forysta vinstriflokka á Íslandi sá tækifæri í haust þegar bankakerfi þjóðarinnar hrundi og lýsti því yfir að grunnhugsjón Sjálfstæðisflokksins væri gjaldþrota rétt eins og bankarnir.

Eins og svo margir aðrir hef ég velt þessu fyrir mér og ákvað að skoða betur grunnhugsjón Sjálfstæðisflokksins sem talin var gjaldþrota. „Frjálshyggjan er fallinn“ sögðu vinstrimennirnir sem nú hafa náð tökum á valdastólum íslenska lýðveldisins.

Í kosningabaráttunni árið 2007 gaf Sjálfstæðisflokkurinn út kynningarmyndband. Í upphafi myndbandsins er grunnhugsjón flokksins lýst:

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur frelsi og sjálfstæði einstaklingsins að leiðarljósi. Þetta er grundvöllur afstöðu flokksins í öllum málum. Þetta er það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn trúir á einstaklinginn og frelsi hans til að þroska og njóta hæfileika sinna í samfélagi þar sem allir hafa jöfn tækifæri. Það er í þannig samfélagi sem einstaklingar og fyrirtæki vaxa og dafna öllum til hagsbóta. Við teljum að þetta samfélag verði best tryggt með lágmarks afskiptum hins opinbera en jafnframt stuðningi við þá sem á þurfa að halda með sterku öryggisneti.“

Á vefsíðu flokksins segir einnig um hugmyndafræðina að „hún gefur sig ekki út fyrir að vera nákvæm forskrift að fullkomnu ríki enda lifa slík fyrirmyndarríki sjaldnast sjálfstæðu lífi utan kennisetninga og fræðikerfa“.

Draga má þennan texta saman í nokkra punkta:
- Frelsi og sjálfstæði einstaklingsins.
- Jöfn tækifæri.
- Lágmarks afskipti hins opinbera.
- Sterkt öryggisnet fyrir þá sem þurfa á slíku að halda.
- Sjálfstæðisstefnan ekki nákvæm forskrift á fullkomnu ríki.

Orðin tala fyrir sig. Ég mun gera það sem ég get til að standa vörð um þessa grunnhugsjón því hún varð aldrei gjaldþrota. Því miður hafa íslensk stjórnmál haft tilhneigingu til að snúast um völd en ekki hugsjónir. Sjálfstæðisflokkurinn verður að taka þetta til sín ásamt öllum öðrum stjórnmálaflokkum. Þessu skal breyta með nýrri kynslóð stjórnmálamanna á Alþingi sem þora að hafa skoðanir og láta til sín taka!

Deiglan.com, 2. mars 2009.


mbl.is Baðst afsökunar á mistökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei Ingibjörgu að kenna

Ingibjörg Sólrún sagði að hún hefði ekki, frekar en aðrir, búist við því að kerfishrun eins og varð hér gæti orðið að veruleika.

 

Nú þarf Ingibjörg að útskýra. Ef hún segir við okkur núna að hún hafi ekki, frekar en aðrir, búist við þessu...? Hvað þýðir það? Hún skammar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið fyrir að hafa ekki brugðist við tilmælum frá ríkisstjórninni með nógu miklum krafti. En af hverju ættu stjórntæki ríkisstjórnarinnar að bregðast við með slíkum krafti ef afstaða stjórnarinnar var sú að kerfishrun væri frekar ólíklegt?

Má þá spyrja hvort Ingibjörg hafi ekki brugðist við með nógu miklum krafti? Stjórnmálamenn eru snillingar í að koma ábyrgð og sök yfir á aðra.


mbl.is IMF varaði við í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur fór beint á fésið

Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi, tilkynnir framboð sitt til varaformanns Samfylkingarinnar á Fésbókinni (e. Facebook). Hvað finnst samfylkingarmönnum um Dag B. sem varaformann og Jón Baldvin sem formann? Ætlar Dagur B. ekkert á þing? Hér með færslunni er mynd af hugsanlegri forystu Samfylkingarinnar fyrir alþingiskosningarnar í apríl. Er ekki pláss fyrir konur þegar kemur að endurnýjun forystu þessa ágæta flokks? Ingibjörg og Jóhanna eru ekki tákn endurnýjunar. Þær eiga að hleypa næstu kynslóð samfylkingarkvenna að borðinu.
mbl.is Dagur í varaformanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað var gert?

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur allar vísbendingar vera í þá átt að verðbólga og vextir lækki hratt á næstu mánuðum. 

Jæja, Steingrímur. Hvað var það nákvæmlega sem ríkisstjórn þín gerði til að ná verðbólgunni niður sem gefur okkur tækifæri til að lækka vexti?
mbl.is Vextir fara að lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband