Hvar er Hörður Torfa?
14.4.2009 | 14:41
![]() |
Krónan veikst með nýrri stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjárframlög til stjórnmálaflokka
11.4.2009 | 11:46
Á undanförnum dögum hafa fjölmiðlar notið þess að fjalla ítarlega um fjármál Sjálfstæðisflokksins og hefur flokkurinn opnað bókhald sitt í framhaldinu. Ég fagna þessari ákvörðun.
Við eigum öll rétt á því að vita hvort flokkarnir séu fjármagnaðir á eðlilegum forsendum og samkvæmt þeim leikreglum sem samfélagið hefur sett með lögum um fjármál stjórnmálaflokka. Mín skoðun hefur ávallt verið sú að hver sem er, einstaklingur eða fyrirtæki, megi veita stjórnmálaflokki styrk. Hámarksupphæð á Íslandi er nú kr. 300.000 en á móti fá stjórnmálaflokkar sem nú eru við völd aukin framlög frá ríkinu.
Að mínu mati ber að leyfa öll fjárframlög til stjórnmálaflokka en skal þá ströng upplýsingaskylda fylgja fyrir framlög yfir t.d. kr. 300.000. Í okkar lýðræðisþjóðfélagi er varla þörf á leynd í tengslum við há fjárframlög til stjórnmálaflokka. Slík leynd leiðir einungis af sér aukna tortryggni í garð stjórnmála. Rétt er að Sjálfstæðisflokkurinn tók við of háum fjárframlögum við árslok ársins 2006. Um þetta deilum við ekki.
Á Íslandi taka stjórnmálaflokkar við afar háum ríkisstyrkjum sem fáir virðast vilja tala um í þeirri umræðu sem á sér stað í þjóðfélaginu nú á dögum. Skattgreiðendur greiða með þessu kerfi mörg hundruð milljónir króna til stjórnmálaflokkanna. Milljónirnar fara til þeirra flokka sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á Alþingi eða hlotið a.m.k. 2,5% atkvæða í alþingiskosningum. Úthlutun styrkja fer eftir fjölda atkvæða.
Ég geri athugasemd við að þeir flokkar sem eiga sæti á Alþingi úthluti sjálfum sér slíkar fjárhæðir af skattfé en halda svo bókhaldi sínu leyndu og tek undir með formanni SUS sem sagði í tilkynningu í gær: Ungir sjálfstæðismenn hafa talað fyrir því, og samþykkt m.a. á þingi okkar í Vestmannaeyjum sl. haust, að fjárframlög fyrirtækja til stjórnmálaflokka þurfi að vera opinber. Slíkt gagnsæi tryggir að kjósendur viti hvaða hagsmunatengsl eru til staðar hjá flokkunum og kemur í veg fyrir að flokkar taki við ofurframlögum."
Þjóðin fjármagnar íslensku stjórnmálaflokkana að miklu leyti og ber því öllum flokkum að opna bókhald sitt. Ef stjórnmálaflokki þykir slík krafa ósanngjörn er honum velkomið að endurgreiða skattgreiðendum sitt framlag.
Deiglan.com, 11. apríl 2009.
![]() |
Flokkarnir skulda hálfan milljarð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Minnihluta Alþingis mótmælt
3.4.2009 | 14:58
Visir.is: "Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan Alþingishúsið í dag og fram á kvöld þar sem mótmæla á málþófi og andstöðu Sjálfstæðisflokksins við frumvarpi um stjórnlagaþing. Heiða B. Heiðarsdóttir ætlar að taka þátt í mótmælunum og bendir á að 70% þjóðarinnar vilji fá stjórnlagaþing og krafan um nýja stjórnarskrá sé hávær. Heiða tilheyrir Borgarahreyfingunni sem setur markið hátt í komandi þingkosningum."
Þetta er ekkert smá fyndið. Sjálfstæðisflokkurinn er í minnihluta á Alþingi og ekki lengur í ríkisstjórn. Kosningar eftir 22 daga!!! Samt eru menn ennþá að mótmæla Sjálfstæðisflokknum? Á meðan situr minnihlutastjórn vinstrimanna á sínum stað í sama gamla aðgerðaleysinu. Ætlar engin að mótmæla aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar? Eða eru þessi mótmæli bara auglýsingabrella í þeim tilgangi að safna atkvæðum?
Óþolandi þegar fólk notar frasa eins og t.d. "þjóðin vill" eða "X % af þjóðinni vill". Af hverju á ekki bara að leggja þessi mál í dóm kjósenda? 3 vikur í kosningar. Í kosningum fá stjórnmálamenn (og flokkar) að vita "hvað þjóðin vill".
Beint lýðræði: fundur m/ Bruno Kaufmann
31.3.2009 | 00:22

Að mínu mati er umræðan hér á landi um beint lýðræði/persónukjör o.s.frv. á villigötum. Eftir að hafa rætt þessi mál töluvert með honum Bruno Kaufmann ákvað ég að athuga hvort ekki væri hægt að vera með opinn fund með honum þar sem hann er á landinu. Við náðum að bóka sal á Háskólatorgi og hefur nú verið auglýstur opinn fundur með honum í dag (þriðjudag) kl. 12. Þessi maður talar af mikilli reynslu og skynsemi.
Sjá nánari upplýsingar hér:
http://www.hi.is/is/vidburdir/bruno_kaufman_beint_lydraedi
Opinn fyrirlestur Bruno Kaufmann, svissneskur stjórnmálafræðingur og blaðamaður, sem ma. rannsakað hefur átakastjórnmál og fylgdist með "búsáhaldabyltingunni" á Íslandi í janúar og mun ræða þá þróun út frá hugmyndum um beint lýðræði í opnum fyrirlestri á vegum stjórnmálafræðideildar og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála í hádeginu á morgun þriðjudag. Bruno Kaufmann er m.a. fyrrverandi framkvæmdastjóri IRI (Initiative & Referendum institute Europe), hefur rannsakað og ritað bækur um lýðræði og átastjórnmál. Virkara lýðræði á Íslandi og hvernig þjóðarfrumkvæði og almennar atkvæðagreiðslur geta bætt fulltrúalýðræðið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Operation Old Iceland
21.3.2009 | 17:12

Alþjóðlegt lögreglusamstarf er augljóslega að skila sér. Einnig finnst mér að lögreglan á Íslandi hafi tilkynnt um aðgerðir gegn eiturlyfjaframleiðslu nánast daglega. Maður getur ekki verið annað en ánægður þegar lögreglan sýnir árangur. Hins vegar mætti spyrja hvort að Europol gæti ekki sett i gang Old Iceland og klárað þetta bankahrunsmál fyrir okkur. Við virðumst að minnsta kosti ekki fær um að sjá um eigin rannsókn. Ekkert breyttist með vinstristjórn - þannig að líklegast þurfum við nýja, öfluga leiðtoga sem þora að hafa skoðanir og taka ákvarðanir. Engin breyting á leiðtogum hjá Samfylkingu og Vinstri grænum.... þannig að við munum að minnsta kosti ekki finna slíka leiðtoga þar.
![]() |
Komið upp um peningaþvætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Superobama
21.3.2009 | 15:17

![]() |
Börn eignast nýja ofurhetju - Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fylkingar og endurnýjun
11.3.2009 | 08:41
![]() |
Beðið eftir Jóhönnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sundurfylkingin
11.3.2009 | 08:19
Agnes Bragadóttir, blaðamaður, sagði á Bylgjunni í morgun: "Þetta verður ekki Samfylkingin, heldur Sundurfylkingin". Getur þetta verið samfylking án Ingibjargar?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rafræn stjórnmál - ódýr og þægileg
10.3.2009 | 23:20
Þróun samskipta á netinu er áhugavert viðfangsefni. Vegna prófkjörsbaráttu og kosninga í vor hef ég í nokkur skipti rætt við vini um tengingu stjórnmálamanna við slíka samskiptavefi eins og t.d. Facebook. Það sem kemur manni á óvart er að sumum finnst viðvera stjórnmálamanna þar óþolandi... sagt er að þetta sé of mikið áreiti.
Hins vegar spyr ég: Er ekki jákvætt að stjórnmálamenn geri sitt besta til að nálgast kjósendur? Er ekki jákvætt að stjórnmálamenn finni ódýrari eða jafnvel ókeypis samskiptaleiðir til að skera niður kostnað?
Kostnaðarhlið þessa máls getur auðveldað nýjum og kannski sérstaklega ungum frambjóðendum að ná árangri. En varðandi áreitið, þá er hægt [á Facebook] að velja og hafna því sem maður vill fylgjast með. Þannig séð hefur maður mun meiri stjórn á "áreitinu" á Facebook heldur en til dæmis ef stjórnmálamenn hefðu þurft að hringja, senda tölvupóst eða senda kjósendum fullt af bæklingum og fundarboðum í pósti (sem kostar sitt).
Mín niðurstaða er sú að samskiptavefir eins og t.d. Facebook séu ákjósanlegri heldur en margar aðrar samskiptaleiðir í kosningabaráttum.
![]() |
Samskiptasíður vinsælli en tölvupóstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar er ríkisstjórnin?
9.3.2009 | 09:41
![]() |
Ríkið tekur Straum yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Að axla ábyrgð
7.3.2009 | 20:07
![]() |
Björgvin G. efstur í prófkjöri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Glæsilegt, XD með mest fylgi
5.3.2009 | 18:40
![]() |
Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
R-listi á Alþingi?
5.3.2009 | 18:17
Ég segi bara eins og Dögg Pálsdóttir segir á sínu bloggi um þetta mál, hjá Framsókn eru ráðherrastólarnir númer 1 og málefnin númer 2. Eða hvað? Einhver ósammála? Að mínu mati er svakalega R-lista-lykt af þessu öllu. Við munum nú hvernig slík samsteypa hagaði sér í Reykjavík á sínum tíma. Fjármálastjórn R-listans fékk falleinkunn í Reykjavík. Óverjandi hallarekstur og skuldasöfnun í mesta góðæri íslandssögunnar. Kemur kannski engum á óvart... alla vega ekki þegar í síðari umræðu um ársreikning Reykjavíkurborgar árið 2006 sagði Svandís Svavarsdóttir (VG):
...það er ekki áhugi á ársreikningum og fjárhagsáætlunum sem dregur mig í pólitík
Ég vil ekki svona óstjórn á Alþingi.
![]() |
Vill vera í vinstri stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Rétt að draga úr kostnaði
4.3.2009 | 19:35
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fá í aðdraganda prófkjörsins að senda einn tölvupóst frá Valhöll til sjálfstæðismanna í kjördæminu til að kynna sig og áherslur sínar.
Nokkrir aðrir bloggarar hafa bloggað við þessa frétt... og nýta þeir sér tækifærið til að gagnrýna þessa aðgerð Sjálfstæðisflokksins. Furðuleg skrif að mínu mati.
Þetta mun hins vegar spara frambjóðendum í öllum kjördæmum töluverðar fjárhæðir. Að senda bréf í pósti til tugþúsunda sjálfstæðismanna kostar sitt... ætli kostnaðurinn við hvert bréf sem frambjóðandi sendir sé ekki á bilinu 70-80 krónur. Því ber öllum stjórnmálaflokkum að taka slíka ákvörðun sér til fyrirmyndar og styðja sparnað í kosningabaráttu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur að undanförnu nýtt sér rafræna miðla í miklum mæli (dæmi: evropunefnd.is, endurreisn.is, profkjor.is).
Þessu átaki Sjálfstæðisflokksins ber að fagna.
![]() |
Fá að senda einn tölvupóst frá Valhöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað á að gera?
4.3.2009 | 17:07
Baggalútur gerir grín af frambjóðendum fyrir að misnota slíkar yfirlýsingar án frekari útskýringa um "hvernig" þeir ætla sér að slá skjaldborg um heimilin og fyrirtækin í landinu. Afskaplega fáar hugmyndir hafa verið settar fram. Þessar hugmyndir þurfa ekki að vera endanlegar lausnir. Við þurfum bara að tala saman. Það er enginn einn maður með lausnina.... þannig séð spyr ég: Hvað á að gera?
![]() |
Lánastofnanir ráða Icelandair |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sigmundur Davíð „plataður“
3.3.2009 | 15:14
Samfylkingin, VG og Framsókn í samstarfi... og kannski áfram eftir kosningar... kosningabandalag? Ég skil ekki hvernig framsóknarmenn sætta sig við þessa minnihluta ríkisstjórn vinstrimanna. Og varðandi hlutverk Framsóknar í þessu öllu, hvernig geta þeir annars vegar sagt að "þeir telja sig ekki hafa umboð til að sitja í ríkisstjórn" en hins vegar leyft þessari vitleysu vinstristjórnarinnar að viðgangast?
Eftir sem manni skilst þá er stjórnin að svíkja loforð... og er það í boði Framsóknar líka? Af hverju er ekki stjórnin sett af?
Annars vita menn að þetta er ekki í fyrsta skipti sem að foringi Framsóknarflokksins er plataður.
![]() |
Sigmundi Davíð boðin sáttahönd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frelsið og einstaklingurinn
2.3.2009 | 20:49
Forysta vinstriflokka á Íslandi sá tækifæri í haust þegar bankakerfi þjóðarinnar hrundi og lýsti því yfir að grunnhugsjón Sjálfstæðisflokksins væri gjaldþrota rétt eins og bankarnir.
Eins og svo margir aðrir hef ég velt þessu fyrir mér og ákvað að skoða betur grunnhugsjón Sjálfstæðisflokksins sem talin var gjaldþrota. Frjálshyggjan er fallinn sögðu vinstrimennirnir sem nú hafa náð tökum á valdastólum íslenska lýðveldisins.
Í kosningabaráttunni árið 2007 gaf Sjálfstæðisflokkurinn út kynningarmyndband. Í upphafi myndbandsins er grunnhugsjón flokksins lýst:
Sjálfstæðisflokkurinn hefur frelsi og sjálfstæði einstaklingsins að leiðarljósi. Þetta er grundvöllur afstöðu flokksins í öllum málum. Þetta er það sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir. Sjálfstæðisflokkurinn trúir á einstaklinginn og frelsi hans til að þroska og njóta hæfileika sinna í samfélagi þar sem allir hafa jöfn tækifæri. Það er í þannig samfélagi sem einstaklingar og fyrirtæki vaxa og dafna öllum til hagsbóta. Við teljum að þetta samfélag verði best tryggt með lágmarks afskiptum hins opinbera en jafnframt stuðningi við þá sem á þurfa að halda með sterku öryggisneti.
Á vefsíðu flokksins segir einnig um hugmyndafræðina að hún gefur sig ekki út fyrir að vera nákvæm forskrift að fullkomnu ríki enda lifa slík fyrirmyndarríki sjaldnast sjálfstæðu lífi utan kennisetninga og fræðikerfa.
Draga má þennan texta saman í nokkra punkta:
- Frelsi og sjálfstæði einstaklingsins.
- Jöfn tækifæri.
- Lágmarks afskipti hins opinbera.
- Sterkt öryggisnet fyrir þá sem þurfa á slíku að halda.
- Sjálfstæðisstefnan ekki nákvæm forskrift á fullkomnu ríki.
Orðin tala fyrir sig. Ég mun gera það sem ég get til að standa vörð um þessa grunnhugsjón því hún varð aldrei gjaldþrota. Því miður hafa íslensk stjórnmál haft tilhneigingu til að snúast um völd en ekki hugsjónir. Sjálfstæðisflokkurinn verður að taka þetta til sín ásamt öllum öðrum stjórnmálaflokkum. Þessu skal breyta með nýrri kynslóð stjórnmálamanna á Alþingi sem þora að hafa skoðanir og láta til sín taka!
Deiglan.com, 2. mars 2009.
![]() |
Baðst afsökunar á mistökum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Aldrei Ingibjörgu að kenna
1.3.2009 | 20:53
Ingibjörg Sólrún sagði að hún hefði ekki, frekar en aðrir, búist við því að kerfishrun eins og varð hér gæti orðið að veruleika.
Nú þarf Ingibjörg að útskýra. Ef hún segir við okkur núna að hún hafi ekki, frekar en aðrir, búist við þessu...? Hvað þýðir það? Hún skammar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið fyrir að hafa ekki brugðist við tilmælum frá ríkisstjórninni með nógu miklum krafti. En af hverju ættu stjórntæki ríkisstjórnarinnar að bregðast við með slíkum krafti ef afstaða stjórnarinnar var sú að kerfishrun væri frekar ólíklegt?
Má þá spyrja hvort Ingibjörg hafi ekki brugðist við með nógu miklum krafti? Stjórnmálamenn eru snillingar í að koma ábyrgð og sök yfir á aðra.
![]() |
IMF varaði við í apríl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dagur fór beint á fésið
1.3.2009 | 20:34

![]() |
Dagur í varaformanninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvað var gert?
1.3.2009 | 12:56
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur allar vísbendingar vera í þá átt að verðbólga og vextir lækki hratt á næstu mánuðum.
![]() |
Vextir fara að lækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)