Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Rétt að einkavæða Landsbankann
17.4.2007 | 12:27
Landsbankinn er sagður hafa áhuga á að kaupa breska hlutabréfamiðlarann Bridgewell Group PLC" Já, þessi útrás er nú alveg ótrúleg. Landsbankinn er meðal þeirra fyrirtækja sem heldur áfram í útrás sinni. Það er alveg skýrt að það var rétt ákvörðun að einkavæða bankann. Landsbankinn hefur stækkað og styrkt sig mun meira á síðustu árum en hann náði að gera alla síðustu öld. Íslensk fyrirtæki stækka bæði hér á landi ásamt því að styrkja stöðu sína erlendis. Það er ekki langt síðan að Landsbankinn keypti Teather & Greenwood(2005).
Aðeins um eitt annað íslenskt fyrirtæki. Félagi minn Kristján Freyr Kristjánsson bloggar í dag um grein í nýjustu útgáfu The Economist. Þar er viðtal við Róbert Wessman. "Þegar Wessmann tók við árið 1999 voru 146 starfsmenn og velta hjá fyrirtækinu nam rúmlega 57 miljónir Evra. Árið 2006 er fyrirtækið komið með 11.000 starfsmenn og veltu upp á 1.4 miljarð Evra." Það er ekki hægt að gera annað en að fagna þessu! :)
Visir.is: Actavis á meðal líklegustu kaupenda á Merck
"Mestar líkur eru á að lyfjafyrirtækin Actavis og indverska félagið Torrent Pharmaceuticals muni berjast um samheitalyfjahluta þýska lyfjarisans Merck. Þetta segir bandaríska viðskiptatímaritið Forbes sem telur að kaupverð geti numið allt að sex milljörðum dala, jafnvirði rúmra 392 milljarða íslenskra króna. Fjárhæðir á borð við 360 til 450 milljarða krónur hafa áður verið nefnd sem hugsanlegur verðmiði fyrir samheitalyfjahlutann."
Landsbankinn sagður vilja kaupa breskt fjármálafyrirtæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
United States of Europe
16.4.2007 | 21:10
Evrópusambandið mun auðvita þróast í evrópskt ofurríki. Það þarf ekkert endilega að vera neikvætt. En ég er ekki neitt viss um að það væri best fyrir Ísland að vera þar inni. Við eigum að halda áfram að vinna í því að styrkja stöðu okkar í alþjóðasamfélaginu og koma á samningum sem henta Íslandi. Til dæmis getum við með því að ekki vera aðildarland í ESB gert samning við Kína.
Stjórnarskrá sambandsins er nokkuð stór bók, og hvort einhverjar takmarkaðar breytingar breyta miklu er ég ekki svo viss um. Það væri samt áhugavert að láta háskólasamfélagið fara nánar í þessi mál. Vonandi mun aukið fjármagn til Háskóla Íslands fara í meðal annars Evrópurannsóknir. Mikilvægt er skoða hvernig hagsmunum Íslands verði best borgið. Það er alls ekki staðfest að það sé innan Evrópusambandsins.
Segja ESB ekki þurfa nýja stjórnarskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir Hillary Clinton styðja Obama
16.4.2007 | 11:27
Það er skemmtilegt að fylgjast með kosningum í Bandaríkjunum nú á dögum. Öflugir fjölmiðlar, sterkir frambjóðendur og núna hefur fjármagnsflæðið tekið á sig breytingu hvað varðar frambjóðendur Demókrata.
Hluti af því fjármagni sem Clinton-hjónin hefðu séð sem öruggt til sín er núna að fara til mótframbjóðendans, Barack Obama. Verdens Gang í Noregi segir frá þessu í dag. Svo virðist vera að Obama sé aleinn um það að geta sigrað Hillary Clinton. En fjölmargir vinir Clinton-hjónanna sem margir fengu að gista í Hvíta Húsinu á kjörtímabili Bill Clinton eru nú að finna sem fjárhagslega stuðningsmenn Obama. Nánari frétt um þetta í New York Times.
Kosningasjóður Obama stækkar á hverjum degi og ekki er langt í að sjóður hans verði jafn stór eða jafnvel stærri en kosningasjóður Hillary Clinton. New York Times fer vel yfir fjármál frambjóðenda.
Núverandi staða Obama vs. Clinton
Barack Obama: 1.680.009.000 ISK
Hillary Clinton: 1.706.157.000 ISK
Ekki langt á milli frambjóðenda, fjárhagslega séð eða í skoðanakönnunum. Þetta gerir allt mikið meira spennandi, þar sem sagt var frá því í byrjun að Hillary Clinton yrði lang sterkust. Þessar kenningar falla einni á eftir annarri. Obama segist vera sækjast eftir embætti forseta, ekki varaforseta.
VG.no segir einnig frá því að frambjóðendur Repúblikana ná ekki að safna jafn miklu fjármagni, miðað við þessa tvo frambjóðendur Demókrata Hillary Clinton og Barack Obama. Þetta eru ánægjulegar fréttir. Ég er ennþá viss um að Obama sé rétti maðurinn fyrir forsetastarfið. Ég tel það vera óheppilegt að Clinton-hjónin fái annað kjörtímabil í Hvíta Húsinu. Því ef hún fer inn, þá verður það nokkuð öruggt í tvö kjörtímabil. Ég tel það vera rangt að þau hjónin fá 16 ár í Hvíta Húsinu.
Frambjóðendur (New York Times)
Fjármál frambjóðenda (New York Times)
Endurnýjun, traust og tækifæri!
15.4.2007 | 15:57
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var glæsilegur! Óska vinum mínum sem náðu kjöri til miðstjórnar til hamingju með flotta kosningu. Erla Ósk, Örvar, Unnur Brá og fleiri. Ég hlakka til að taka þátt í baráttunni undir slíkri forystu! Flottur formaður, flottur varaformaður og flottur hópur frambjóðenda í öllum kjördæmum!
XD.IS: Miðstjórnarkjör - glæsileg kosning kvenna
Kosningu til miðstjórnar lauk kl. 12 á hádegi og voru 11 fulltrúar kjörnir. Átta konur náðu kjöri og þrír karlar en 25 gáfu kost á sér í kjöri. 1.012 landsfundarfulltrúar greiddu atkvæði. 5 kjörseðlar voru ógildir. Eftirtaldir náðu kjöri.
Kjartan Gunnarsson 70,4 %
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir 66,2 %
Unnur Brá Konráðsdóttir 66,2 %
Áslaug María Friðriksdóttir 62,9 %
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 60,6 %
Elínbjörg Magnúsdóttir 54,5 %
Þórunn Jóna Hauksdóttir 54,5 %
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 53,1 %
Erla Ósk Ásgeirsdóttir 48,8 %
Helga Þorbergsdóttir 47,2 %
Örvar M. Marteinsson 46,4 %
------
Stefnan skýr á öllum sviðum, ekkert skoðanaleysi í gangi hér! Það er augljóst að Ísland er land tækifæranna og að kjör þeirra lægst settu í samfélaginu hafa farið batnandi(hér erum við með þeim bestu í Evrópu). Einnig er jöfnuður mikill á Íslandi. Samfylkingin hefði ekki geta gert neitt betur, við sáum alveg hvernig hún stjórnaði borginni með auknum skuldum og grænu skref þeirra voru nánast engin. Hvernig ætlar Samfylkingin að fjármagna allt velferðasamfélagið án hagvaxtar í samfélaginu? Þarf ekki auknar tekjur til að geta séð fyrir auknum útgjöldum?
Núna er bara að mæta á kjörstað þann 12.maí nk. og endurnýja umboð Sjálfstæðisflokksins til að stýra næstu ríkisstjórn!
Geir: Fer fram á endurnýjað umboð til að stýra næstu ríkisstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Samfylkingin er ekki fullmótaður flokkur!
14.4.2007 | 20:03
Það er ekki hægt að segja það eftir einungis átta ár, að Samfylkingin sé orðin fullmótaður flokkur jafnaðarmanna. Fylgishrun flokksins sýnir nákvæmlega allt annað. Til dæmis er ekki öruggt hver staða VG verði á næstunni.
Það er best að gefa Sjálfstæðisflokknum áframhaldandi umboð. Sjálfstæðisflokkurinn er fullmótaður flokkur sem byggir starf sitt á traustum grunni. Búið er að endurnýja forystu flokksins og ályktanir sem samþykktar voru í dag á landsfundinum í Laugardalshöll eru til fyrirmyndar. Flokkurinn hefur verndað frelsi og sjálfstæði einstaklingsins á Íslandi í marga áratugi, og vona ég að hann muni halda sínu forystuhlutverki.
"Aðalhugsunin er sú, að þjóðfélagið verði samsafn sem flestra sjálfstæðra og frjálsra einstaklinga, sem hver fyrir sig geti haft sem óbundnastar hendur til þess að efla farsæld síns heimilis og þar með alls þjóðfélagsins öðrum að skaðlausu" Jón Þorláksson, 1926
"En frelsi og sjálfstæði er sá aflvaki, sem Íslendingum hefur bezt dugað. Ef við sjálf dugum þeirri háleitu hugsjón, mun Ísland vel vegna, bæði í bráð og lengd" Bjarni Benediktsson, 1969
"Við viljum búa í þjóðfélagi, þar sem hver einstaklingur fær notið sín og hefur fullt athafnarfrelsi, laus við þrúgandi hömlur miðstýringar" Geir Hallgrímsson, 1977
XD er málið!
Ingibjörg Sólrún: Erum orðin fullmótaður flokkur jafnaðarmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auglýsingabrella Írana staðfest
5.4.2007 | 15:24
Það er mikið rétt í þessu hjá Blair. Það má alls ekki með þessu slaka á gagnvart Írönum í öðrum málum. Ég er með bloggfærslu frá því í hádeginu í dag: "Auglýsingabrella ársins?". Mér finnst það nú vera nokkuð staðfest núna, að þetta var auglýsingabrella. Þegar Bretar segja engar samningaviðræður hafa farið fram og ekkert samkomulag hafi náðst af neinu tagi... samt eru strákarnir komnir heim með kampavín og sælgæti?
Ég vona að það sé rétt sem hann Blair segir, um nýjar samskiptaleiðir, þannig séð til að forðast hernaðaraðgerða. Ég reikna nú með því að þessar aðgerðir Íransforseta eiga eftir að gera mikið erfitt fyrir næstu skref Breta og Bandaríkjamanna.
En er forsetinn í alvöru að óska eftir friðsamlegu samstarfi? Er þetta ekki bara auglýsingabrella til að ná sér í stuðning meðal almennings í vestrænum ríkjum?
Ekki samið við Írana um lausn sjóliða að sögn Blair | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auglýsingabrella ársins?
5.4.2007 | 12:49
Ahmadinejad [1 - 0] Bush/Blair
Ahmadinejad sendir kannski fréttatilkynningu seinna í dag með fyrirsögninni: "Blair: Tekinn!!" eða "Face!!"
Sjóliðarnir komnir heim með vasa og sælgæti frá Ahmadinejad
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Erum við alþjóðleg?
2.4.2007 | 14:32
Forstjóri OMX Nordic Exchange á Íslandi, Þórður Friðjófsson, mætti til okkar í tíma fyrir uþb 2 vikum síðan. Námskeiðið heitir -Alþjóðavæðing og stjórnmál alþjóðahagkerfisins-. Ég spurði þar hvort Íslendingar fá þessa eftirsóttu athygli alþjóðasamfélagsins/fjárfesta. Við erum auðvitað nafli alheimsins þegar við Íslendingar tölum um aðra Íslendinga eða bara starfsemi tengd landinu. En hvernig er þetta í raun og veru, erum við að verða stór?
Þórður svaraði með því að benda á sjálfstraust Íslendinga. Hann sagði: -við erum öðruvísi. Til dæmis förum við beint í stór alþjóðleg fyrirtæki með hugmyndir, kynningar og framtíðarsýn. Það er ekki beðið eða óttast neitt. Þetta er hluti af því sem gerir íslenska fjárfestingaaðila sterka. Sjáum góð tækifæri, og reynum að nýta þau eins og við getum. Þetta skilar árangri-. Það er auðvitað áhætta í því að fara í útrás og fjárfesta í hitt og þetta. En það er líka áhætta falin í því að standa aðgerðalaus, bætti Þórður við. Við erum nú vonandi flest sammála um það, að sá sem tekur ekki áhættu getur ekki krafist þess að upplifa hagvöxt.
Kauðhöllin er að þróast í rétta átt, og erum við að undirbúa okkur fyrir framtíðina! Til hamingju!
Alþjóðleg kauphöll á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kjósum fólk með skoðanir
2.4.2007 | 09:01
Ég er rauður, skoðanalaus, skil ekki alveg hvernig lýðræði virkar og er hræddur við að takast á við flókin málefni. Hver er ég?
Svar: Samfylkingin
Ég ætla ekki að taka álver eða úrslit þessara kosninga sem áttu sér stað í Hafnarfirði þessa helgi til umfjöllunar. Nokkuð viss um að það sé til nóg af pistlum, greinum og bloggfærslum um þau málefni. En mig langar til að fara aðeins yfir þetta fyrirbæri sem ber nafnið íbúalýðræði. Stjórnmálamenn nútímans virðast halda að þeir geti falið skoðanir sínar á bak við íbúalýðræðið. Erum við ekki flest sammála um að það sé einfaldlega rangt?
Þetta er meðal þess sem fram kemur í Deiglupistli eftir mig sem birtist í dag.
Engin niðurstaða.
1.4.2007 | 00:49
Þetta er engin sigur. En já, sögulegar kosningar. Stjórnmálamenn í bæjarstjórn Hafnafjarðar sleppa við að taka þessa ákvörðun sjálfir og fela sig á bak við fyrirsagnir eins og til dæmis "Sögulegar kosningar" eða orð eins og "íbúalýðræði". Af hverju ekki bara koma upp kosningum reglulega og virkja íbúalýðræðið á fullu? Mánaðarlegar kosningar sem taka fyrir mál sem verða skilgreind sem: "Mál sem stjórnmálamenn þora ekki að afgreiða sjálfir" og "mál sem geta haft neikvæð áhrif á kjósendur við næstu kosningar". Eða bara sleppa yfir höfuð að hafa bæjarstjórn og koma sér yfir í fleiri sögulegar kosningar og fallegt íbúarlýðræði. Mætti bjóða Hafnfirðingum að taka að sér að vera tilraunarsveitarfélag?
En jæja.. er þá ekki bara málið að flytja álverið yfir í annað sveitarfélag, þar sem starfsemin er velkomin? Alcan nýtir sér kannski skaðabæturnar(sem ég reikna með að þeir fá) til að koma upp höfn í öðru sveitarfélagi?
Lúðvík: Sögulegar kosningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)