Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Björn Bjarnason áfram ráðherra!
23.5.2007 | 09:27
Barack Obama er öflugasti frambjóðandinn
21.5.2007 | 21:41
Barack er á leiðinni upp og Hillary á leiðinni niður. Barack Obama er einnig öflugasti frambjóðandinn þegar teknir eru saman hugsanlegir frambjóðendur og spurt "hver sigrar hver?". Sjá töflu fyrir neðan.
Allar skoðanakannanir sýni ávallt meiri stuðning í garð Obama og félaga. Einnig sést hvernig "veit ekki" hópurinn fer minnkandi. Bandaríkjamenn hafa vonandi loksins náð að kynnast Obama betur og þannig séð farnir að treysta honum fyrir forsetaembættinu.
Nokkrar skoðanakannanir:
USA Today
CNN
Gallup
Hver sigrar hvern?
Skoðum þessar kannanir aðeins nánar:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Glæsilegt!
21.5.2007 | 12:43
Það er ekki hægt að gera annað en að fagna þessu. Nú á dögum er alveg nauðsynlegt að hafa sýnilega lögreglu í hverfum höfuðborgarinnar. Þetta er frábær hugmynd.
Litlir lögreglubílar í hverfaeftirliti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórn Sjálfstæðisflokksins
17.5.2007 | 21:05
Það eru nú frekar margir sem vilja sjá Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna í ríkisstjórn. Ég er sammála því að rétt var að láta Framsóknarmenn fara frá og að þessi nýja stjórn geti verið nokkuð áhugaverð.
Kjósendur hafa gefið stjórnmálamönnum þjóðarinnar mjög skýr skilaboð með atkvæðum sínum 12.maí sl. En ég vona að Geir gefi ekkert eftir. Sjálfstæðismenn eru sigurvegarar þessara Alþingiskosninga og Samfylkingin tapaði þingmönnum. Kjósendur vilja sjá nýja ríkisstjórn en þá vel merkta Sjálfstæðisflokknum.Ingibjörg Sólrún: VG vildi ekki mynda stjórn með Framsóknarflokki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Wolfowitz í vandræðum
15.5.2007 | 22:16
Þessi frétt á mbl.is segir afskaplega lítið um málið. Leiðinlegar þessar stuttu skyndifréttir. Styrmir Gunnarsson(ritstjóri Morgunblaðsins) sagði í vor, þegar hann heimsótti okkur í stjórnmálafræðinni, að Morgunblaðið væri að reyna finna leiðir til að ná til nýrra kynslóða sem hefur sjaldan tíma til að lesa fréttir. En það er nú leiðinlegt þegar fréttirnar eru þetta stuttar og frekar innihaldslausar. Oft þarf að fylgjast með mbl.is allan daginn til að ná allri sögunni þar sem stór mál eins og Wolfowitz-málið koma í 3, 4 eða 5 hlutum yfir daginn. Jafnvel fleiri. Stundum þarf að hafa lesið allar fréttir á mbl.is um málið til að skilja út á hvað það gengur. Vantar til dæmis tengla inn á eldri fréttir um sama mál.
Wolfowitz í vandræðum
Þetta með Paul Wolfowitz, forstjóra Alþjóðabankans, er nokkuð spennandi. Starfsmenn bankans, Demókratar í Bandaríkjunum og anti-Bush-fólk um allan heim vilja núna neyða Wolfowitz til að segja af sér. Ekki er hægt að vera annað en sammála ef allt er satt sem andstæðingar forstjórans segja. Ef Wolfowitz nýtir sér spillingu til að hækka laun kærustu sinnar (var komin upp í 200.000 dollara í árslaun) þá er hann kannski ekki hæfasti aðili til að sinna stöðu forstjóra Alþjóðabankans. Bankinn starfar víða um heim og veitir ríkjum lán til að bæta efnahagskerfi þeirra ásamt því að vinna gegn til dæmis spillingu.
Mig grunar samt að þetta sé frekar lítið mál en að valdabaráttan í pólitíkinni geri þetta að stórmáli. Þetta snýst örugglega bara um vald og að skaða forseta G.W.Bush. Ekki er það G7 sem tekur ákvörðun í þessu máli, heldur er það stjórn Alþjóðabankans. Þeir verða sjálfir að koma sér saman um hvort hægt sé að treysta Paul Wolfowitz. Japanar tóku afstöðu með Bandaríkjamönnum sem óska eftir því að hann haldi áfram störfum sínum og reikna ég með því að Nicolas Sarkozy, nýi forseti Frakklands, taki einnig afstöðu með þeim þegar hann tekur formlega við forsetaembætti sínu.
En Kanada var á móti því að Wolfowitz myndi halda áfram starfi sínu. Einnig hefur John Edwards, frambjóðandi í prófkjöri Demókrata í Bandaríkjunum, sagt meðal annars: "America's ability to lead in the fight against global poverty is undermined with Paul Wolfowitz at the helm of the World Bank. He should resign". Styttist í forsetakosningar í Bandaríkjunum og örugglega margir sem vilja nýta sér þetta tækifæri til að skjóta á Repúblikana sem Wolfowitz hefur í kringum sig.
Bandaríkjunum tókst ekki að fá G7 ríkin til að styðja Wolfowitz | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hunsun alþjóðamála
14.5.2007 | 19:00
Það er nú bara þannig að Íslendingar vita varla neitt um bandarísk eða alþjóðleg stjórnmál. Flestir nenna rétt svo að kynna sér það sem er í gangi á Íslandi. Fréttaflutningur íslenskra fjölmiðla um utanríkismál er nú frekar lélegur og mjög svo takmarkaður.
Af erlendri fréttaumfjöllun á Íslandi þá mætti halda að það sem mest er fjallað um sé Eurovision. Kannski er það rangt hjá mér að segja að Íslendingar séu ekki alþjóðlegir. En þarf maður ekki að vita eitthvað um þessi mál ásamt því að vera virkur þátttakandi til þess að geta talist alþjóðlegur? Vanþekking er áhyggjuefni þegar kemur að fréttaflutningi, kennslu og kunnáttu á Íslandi hvað varðar alþjóðleg stjórnmál. Það er sjaldan fjallað um þróun alþjóðasamfélagsins og samkvæmt ýmsum fræðimönnum er það sérstakt vandarmál að alþjóðavæðing sé ekki kennd nægilega vel.
Það má vel vera að skortur á fjármagni komi í veg fyrir að íslenskir fjölmiðlar geti leyft sér að flytja ítarlegan fréttaflutning um alþjóðleg málefni. En fyrir þá sem hafa áhuga á þessum málefnum er afskaplega leiðinlegt að lesa ílla unnar skyndifréttir og því hef ég minnkað töluvert lestur minn um utanríkismál á mbl.is og visir.is.
Ég er einn af þessum svokölluðu fréttafíklum og fer örugglega 50 sinnum inn á mbl.is og visir.is á hverjum degi ásamt því að lesa blöð, greinar og vefrit þegar tíminn leyfir slíkt. Bara til að fylgjast með og sjá hvaða mál eru á dagskrá á hverjum tíma. Það má að minnsta kosti staðfesta að fyrrnefndar fréttavefsíður séu á réttri leið. Einnig á Davíð Logi Sigurðsson hjá Morgunblaðinu sérstakt hrós skilið fyrir fréttaflutning sinn um alþjóðleg málefni.
Utanríkismál á deiglunni
Nú er margt spennandi á dagskrá hjá alþjóðasamfélaginu. Þar má nefna framtíðarstórmál eins og þróun Rússlands. Á næstu áratugum verður Evrópusambandið mjög háð Rússlandi í orkumálum. Í dag eru 25% af gasbyrgðum sambandsins frá Rússlandi og fer þetta upp í 60% á næstu áratugum. Það er að mínu mati mjög athyglisvert að varla skuli vera umfjöllun um þessi mál á Íslandi þar sem þau eru afar tengd þeim málum sem eru í gangi núna. Það tengist þá samstarfi Íslendinga og Norðmanna á norðurhafssvæðum. Reikna má með miklum deilum fyrir norðan sem munu tengjast auðlindum og siglingaleiðum. Þetta er meðal annars ein af ástæðunum fyrir öllum þessum áhuga Norðmanna hvað varðar samstarf við Ísland.
Önnur mál á dagksrá alþjóðasamfélagisins eru til dæmis þróun Sameinuðu þjóðanna og óstöðuleiki Mið-Austurlanda. Eiga gömlu stórveldin að vera með veto/neitunarvald í Öryggisráðinu? Eiga fleiri ríki að fá veto? Er í lagi að leyfa Írönum að hunsa alþjóðlegt vald? Ætti að koma Bandaríkjamönnum í spennitreyju til að halda þeim rólegum? Hversu frjáls á alþjóðavæðingin að vera? Eigum við að setja kröfur í þessari þróun?
Það eru óteljandi mál sem hægt væri að fjalla nánar um og mun ég örugglega renna í nokkur hér á Deiglunni á næstunni. Einnig eru aðrir deiglupennar sem skrifa mjög skemmtilega og fróðlega pistla um ýmis utanríkismál. Ég hvet alla áhugasama til að leita í pistlasafni Deiglunnar því þar finnst mikið af góðu lesefni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aftur: Of margar skoðanakannanir
11.5.2007 | 15:36
Skoðanakannanir geta alveg verið góðar. En það sem margir segja nú á dögum er að þær eru bara einfaldlega of margar. Þessar kannanir fá alla vega allt of mikla athygli meðal fjölmiðla. Fjölmiðlar eiga ekki að eyða öllu þessu mikilvæga plássi hjá sér í svona innihaldslausar fréttir, heldur flytja alvöru fréttir af málefnum, stefnum, áherslum flokka og frambjóðenda.
Ég sem kjósandi þarf ekki að vita hver staðan er á hverjum degi.
Hafa kannanir áhrif á kjósendur? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Of margar skoðanakannanir!
10.5.2007 | 00:00
Ég veit ekki alveg með þessar kannanir. En að mínu mati fer of mikið púður í þær á til dæmis forsíðum og/eða bestu síðum dagblaða. Einnig fer of mikill tími stjórnmálamanna í að kommenta og túlka skoðanakannanir. Segja hvort sem er alltaf það sama.
Nokkrar kannanir yfir vorið og nokkrar fyrir kosningar gefa okkur góðar og fínar vísbendingar, en þetta er orðið of mikið. Stundum er maður að lesa fleiri kannanir á dag og ekkert talað um annað en fylgi flokka samkvæmt skoðanakönnun. Það væri betra að fá málefnin á forsíður dagblaðanna, ekki skoðanakannanir heldur alvöru skoðanir.
Hvað varðar fylgi flokka, þá er það bara eitt sem skiptir máli þar: alvöru atkvæði í kjörkassa.
Ríkisstjórnin fallin samkvæmt nýrri skoðanakönnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Money makes the world go around
8.5.2007 | 21:34
Hvað með "money makes Iran go around? Það er þá alla vega einnig þannig með Íran, eins og með t.d. Kína, að viðskiptin leiðbeina stjórnmálamönnum þar yfir í friðsamlega hegðun. Eins og sagt er í fréttinni á mbl.is þá hagnast Íran mun meira á stöðuleika og vaxandi hagkerfi í Afganistan. Þetta sýnir okkur hversu öflug frjáls viðskipti geta verið. Ekki hafa Bandaríkin með allt vald sitt geta fengið Írana til að skipta um skoðun eða hegða sér öðruvísi. Einungis viðskipti hafa áhrif á þessa stjórn. Þann 12. febrúar 2007 lýsti Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, því yfir að Íran óttast ekki bandaríska herinn og að Íranar muni refsa Bandaríkjamönnum grimmilega ef þeir ráðast á landið.
En það er auðvita ekki í lagi að Íranar veiti Talibönum aðstoð. Við verðum að finna leið til að refsa ríkjum eins og Íran í þessu tilfelli án þess að þurfa ráðast á til dæmis efnahagskerfið. Viðskiptin/efnahagurinn er einmitt það afl sem hefur jákvæð áhrif á Íran. Viðskiptabann er að mínu mati ekki rétta leiðin. Skulum ekki vinna gegn eina aflinu sem hefur náð árangri.
Hvað ætti alþjóðasamfélagið að gera?
Bretar saka Íran um að veita Talibönum aðstoð í Afganistan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stefnubreytingar væntanlegar 2008?
7.5.2007 | 21:10
Það er alveg öruggt að með Obama sem forseta, þá verða miklar stefnubreytingar í Bandaríkjunum á hans kjörtímabili(um). Ég er sammála því að það þarf að hvetja til framleiðslu á sparneytnum bílum. Leiðandi bílaframleiðendur í heiminum í dag eru þau fyrirtæki sem framleiða sparneytna bíla. Meðal verst settu framleiðendum eru meðal annars þeir bandarísku.
En svo er bara spurning hvað ríkið getur eða á að gera. Ríkisstyrk? Fella niður gjöld, tolla osfrv? Obama-lausnin: ríkið aðstoða framleiðendur fjárhagslega við að sjá hluta af fyrrum starfsmönnum sem komnir eru á eftirlaun fyrir sjúkratryggingum?
Obama hyggst breyta orkustefnu Bandaríkjanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |